Ökukennarinn
Hafsteinn Eyland Brynjarsson er ökukennarinn á bakvið ÖkuEyland. Hjá Hafsteini lærir þú á beinskiptan bíl. Hann leggur áherslu á rólega og uppbyggilega kennslu þar sem þú byggir upp sjálfstraust og færni á eigin hraða.
Þjónusta
Ökukennsla
Akstursmat
Algengar spurningar
Hvenær má byrja í ökunámi?
Þegar tilvonandi nemandi er orðinn 16 ára þarf hann að finna sér ökukennara og sækja um námsheimild á island.is - athugið að nemandinn þarf að vera með Stafræn skilríki til þess. Auk þess þarf að skila inn passamynd á skristofu næsta sýslumanns.
Þegar námsheimild er komin er komið að fyrsta ökutímanum ásamt því má hefja bóklegt nám í Ökuskóla 1 sem er tekið rafrænt.
Hvað þarf marga ökutíma?
Lágmarksfjöldi tíma eru 15 talsins. Í flestum tilfellum taka nemendur um 17–25 ökutíma, en það er ekki föst tala. Sumir þurfa færri tíma en aðrir fleiri - það fer eftir aðstæðum og undirbúningi.
Lesa meira um ökunám á Íslandi
Hvernig bóka ég tíma?
Þegar þú kaupir tíma færðu sendan hlekk á dagatal þar sem þú velur dag og tíma sem hentar þér.
Er þetta viðurkennt nám?
Já, öll kennsla fer fram samkvæmt reglum Samgöngustofu og við leiðbeinum þér við val á viðurkenndum ökuskóla sem sér um bóklegt nám.
Get ég tekið bóklega námið hjá ykkur?
Við erum ekki með bóklega hluta ökukennslunnar hjá okkur, en við leiðbeinum
þér um val á viðurkenndum ökuskóla og setjum inn í námsáætlunina þína.
Get ég dreift greiðslum?
Já við bjóðum upp á fjölbreyttar greiðsluleiðir: með millifærslu, kortagreiðslum, Netgíro og Pei.