Ökunámið
Ef þú ert að byrja í ökunámi er eðlilegt að velta fyrir sér hvernig ferlið virkar.
Ökunám er skref fyrir skref ferli sem miðar að því að byggja upp færni og sjálfstraust í umferðinni.
Með góðu skipulagi og leiðsögn verður námið bæði einfaldara og skemmtilegra sem skilar öruggum bílstjórum í umferðina.
-
Ökutímar
Þú byrjar á verklegum tímum þar sem þú lærir:
- að stjórna bílnum
- grunnatriði í akstri
- að takast á við einfaldar aðstæður
Markmiðið er að byggja upp öryggi frá byrjun. Algengast er að taka ökutíma nokkuð þétt til að byrja með áður en æfingaakstur hefst, að minnsta kosti 10 tíma.
- að stjórna bílnum
-
Ökuskóli 1
Samhliða ökutímum tekur þú Ökuskóla 1 sem er bóklegt nám þar sem farið er yfir:
- skilning á umferðinni
- helstu umferðarreglur
- umferðarmerki
- umferðarsálfræði
- ýmis verkefni unnin
-
Æfingaakstur
Þegar þú hefur lokið 10 ökutímum hið minnsta og hefur lokið Ökuskóla 1 ásamt því að hafa náð ákveðinni grunnfærni getur þú farið í æfingaakstur. Æfingaakstur skiptir miklu máli til að:
- auka öryggi við akstur
- æfa utan ökutíma með kennara
- flýta fyrir náminu
Ökukennarinn er í góðu sambandi við nemanda og leiðbeinendur á æfingatímabilinu. Ökutímar með kennara eru teknir eftir þörfum samhliða.
- auka öryggi við akstur
-
Ökuskóli 2
Í Ökuskóla 2 er farið dýpra í:
- hættumat
- hegðun í umferð
- ákvarðanatöku
- hættumat
-
Ökuskóli 3 - Ökugerði
Áður en farið er í ökugerði þarf að:
- ljúka Ökuskóla 1
- hafa tekið að minnsta kosti 10 ökutíma
Í ökugerði er æft og farið yfir:
- hálkuakstur og stjórn á bíl
- viðbrögð við hættulegum aðstæðum
- áhrif áfengis og þreytu á akstur
Þetta er mikilvægur hluti af öryggisnámi.
- ljúka Ökuskóla 1
-
Prófundirbúningur
Áður en farið er í próf þarf að fara í undirbúningstíma, einn eða fleiri - allt eftir hverjum og einum nemanda. Algengt er að heildarfjöldi ökutíma sé 17–25 tímar en það þarf að taka að lágmarki 15 tíma áður en farið er í próf.
Í undirbúningstíma/tímum:
- er hæfni metin
- farið yfir aksturslag
- gefin endurgjöf
Eftir tímann/tímana færðu staðfestingu á að þú sért tilbúin/n í próf.
- er hæfni metin
-
Bóklegt próf
Í fyrsta lagi 2 mánuðum fyrir 17 ára afmælisdag:
Lágmarksfjöldi verklegra ökutíma fyrir bóklegt próf er 12 ef Ökuskóla 3 er lokið, annars 14.
Prófið samanstendur af 50 fullyrðingum sem svara á rétt eða rangt. Spurt er um efni sem þú hefur lært í ökuskólanum og hjá kennaranum.
Niðurstöður úr prófinu færðu strax við próflok. Svara þarf 45 fullyrðingum rétt til að standast prófið.
Ef þú fellur á prófinu getur þú tekið það aftur að viku liðinni. -
Verklegt próf
Í fyrsta lagi 2 vikum fyrir 17 ára afmælisdag:
Til þess að geta bókað verklegt próf þarf ökuskólunum þremur að vera lokið ásamt 15 ökutímum með kennara hið minnsta.
Ökukennari pantar verklega prófið eftir að þú hefur staðist bóklega prófið.
Prófið skiptist í munnlegt og verklegt próf. Í munnlega hlutanum er spurt um ýmsa þætti sem tengjast bílnum á borð við ljós í mælaborði, stjórn- og öryggistæki og hluti sem tengjast viðhaldi bílsins.
Í verklega hlutanum er akstursfærni og aksturslag metið.
Ef þú fellur á prófinu getur þú tekið það aftur að viku liðinni. -
Ökuskírteinið
Þegar nemandinn hefur staðist bæði bóklegt og verklegt próf gefur sýslumaður út bráðabirgðaskírteini til þeirra sem hafa náð 17 ára aldri.
Hægt er að nálgast rafrænt ökuskírteini á island.is en ökuskírteinið er sent á lögheimili sjálfkrafa.
Bráðabirgðaskírteinið gildir í 1 til 3 ár. Að þeim tíma loknum má sækja um fullnaðarskírteini.
Áður en fullnaðarskírteini er gefið út þarf að standast akstursmat hjá ökukennara að eigin vali.
Algengar spurningar
Hvenær má byrja í ökunámi?
Þegar tilvonandi nemandi er orðinn 16 ára þarf hann að finna sér ökukennara og sækja um námsheimild á island.is - athugið að nemandinn þarf að vera með Stafræn skilríki til þess. Auk þess þarf að skila inn passamynd á skrifstofu næsta sýslumanns.
Þegar námsheimild er komin er komið að fyrsta ökutímanum ásamt því má hefja bóklegt nám í Ökuskóla 1 sem er tekið rafrænt.
Hvað þarf ég að fara í marga ökutíma?
Lágmarksfjöldi tíma til þess að þreyta verklegt bílpróf eru 15 talsins, hins vegar er algengara að nemendur taki 17 – 25 ökutíma. Það er einstaklingsbundið hvað þarf marga tíma, það sem skiptir mestu máli er að nemandi finni til öryggis og ánægju við aksturinn.
Eftir 10 ökutíma og Ökuskóla 1 má hefja æfingaakstur.
Hvernig bóka ég tíma?
Þegar þú kaupir tíma færðu sendan hlekk á dagatal þar sem þú velur dag og tíma sem hentar þér fyrir fyrsta ökutímann þinn.
Get ég tekið bóklegt nám hja ykkur?
Við erum ekki með bóklega hluta ökukennslunnar hjá okkur, en við leiðbeinum
þér um val á viðurkenndum ökuskóla og setjum inn í námsáætlunina þína.
Get ég dreift greiðslum?
Já. Þú greiðir fyrir tímana þegar þú bókar en við bjóðum upp á fjölbreyttar greiðsluleiðir: með millifærslu, kortagreiðslum, Netgíro og Pei.
Er þetta viðurkennt nám?
Já, öll kennsla fer fram samkvæmt reglum Samgöngustofu og við leiðbeinum þér við val á viðurkenndum ökuskóla sem sér um bóklegt nám.
Ökunám
Skipulagt ökunám frá fyrsta tíma til prófs
- að lágmarki 15 ökutímar
- Ökuskóli 1
- Æfingaakstur
- Ökuskóli 2
- Ökuskóli 3
- Undirbúningur fyrir próf
- Prófakstur
Þú færð skýra áætlun og leiðsögn alla leið - svo þú veist alltaf hvað er næst.