Að hefja nám

Það eru margir sem velta fyrir sér hvernig eigi að bera sig að þegar líða tekur að ökunámi.

Ökunámið getur hafist á 16 ára afmælisdeginum sem skiptist í verklegt og bóklegt nám.

  • Númer eitt

    Það fyrsta sem þarf að gera er að velja sér ökukennara sem nemanda líst vel á. Ökukennarinn fer yfir námsfyrirkomulagið með nemanda og leiðbeinir með næstu skref.

  • Númer tvö

    Áður en kennsla getur hafist þarf nemandinn að sækja um ökuskírteini sem er svokölluð námsheimild. Sótt er um rafrænt á island.is, þarf því nemandinn að vera með rafræn skilríki. Eftir að umsókn hefur verið stofnuð, þarf að skila inn passamynd og undirritun til næsta sýslumanns.

    Sækja um námsheimild 
  • Númer þrjú

    Námsheimild er klár, Ökunámsbókin því tilbúin og fyrsti ökutíminn verður að veruleika.

    Ökunámsbókin er rafræn og má nálgast á island.is, í henni er haldið utan um framvindu námsins. Loknum ökutímum eru skráðír, þegar nemandi lýkur bóklegu námi í ökuskólunum ásamt heimild fyrir æfingaakstri þegar þar að kemur.

  • Ökunámið

    Ökunám er skref fyrir skref ferli sem miðar að því að byggja upp færni og sjálfstraust í umferðinni.

    Með góðu skipulagi og leiðsögn verður námið bæði einfaldara og skemmtilegra sem skilar öruggum bílstjórum í umferðina.


    Námið skiptist í verklegt og bóklegt nám sem felur meðal annars í sér a.m.k. 15 verklega ökutíma (algengt er að tímarnir séu 17 - 25 talsins), æfingaakstur ásamt þremur ökuskólum.

    Lesa meira 
  • Ökukennarinn

    Hafsteinn Eyland Brynjarsson er ökukennarinn á bakvið ÖkuEyland. Hann leggur áherslu á rólega og uppbyggilega kennslu þar sem þú byggir upp sjálfstraust og færni á eigin hraða.


    Að velja réttan ökukennara getur haft mikil áhrif á hvernig ökunámið gengur.
    Hann leggur áherslu á persónulega nálgun, skýra uppbyggingu og öruggt námsumhverfi.

    Lesa meira 
  • Námsleiðir

    Við bjóðum upp á að taka verklega hlutann hjá okkur en við setjum upp skipulagða námsáætlun sem tekur til allra skrefa í ökunáminu. Við aðstoðum við að velja viðurkenndan Ökuskóla sem sér um bóklega kennslu sé þess óskað.

    Gott ökunám snýst ekki bara um að ná prófi, heldur að verða öruggur ökumaður.

    Með persónulegri kennslu, skýrri áætlun og faglegri nálgun færðu betri upplifun og meiri árangur.

    Skoða 

Algengar spurningar

Hvað þarf ég að fara í marga ökutíma?

Lágmarksfjöldi tíma til þess að þreyta verklegt bílpróf eru 15 talsins, hins vegar er algengara að nemendur taki 17 – 25 ökutíma. Það er einstaklingsbundið hvað þarf marga tíma, það sem skiptir mestu máli er að nemandi finni til öryggis og ánægju við aksturinn. Eftir 10 ökutíma og Ökuskóla 1 má hefja æfingaakstur.


Lesa meira um ökunám á Íslandi

Hvernig bóka ég tíma?

Þegar þú kaupir tíma færðu sendan hlekk á
dagatal þar sem þú velur dag og tíma sem hentar þér.

Skoða nám

Get ég dreift greiðslum?

Já við bjóðum upp á fjölbreyttar greiðsluleiðir: með millifærslu, kortagreiðslum, Netgíro og Pei.

Get ég tekið bóklega námið hjá ykkur?

Við erum ekki með bóklega hluta ökukennslunnar hjá okkur, en við leiðbeinum
þér um val á viðurkenndum ökuskóla og setjum inn í námsáætlunina þína.

Er þetta viðurkennt nám?

Já, öll kennsla fer fram samkvæmt reglum Samgöngustofu og við leiðbeinum þér við val á viðurkenndum ökuskóla sem sér um bóklegt nám.

Ökunám

Skipulagt ökunám frá fyrsta tíma til prófs
  • að lágmarki 15 ökutímar
  • Ökuskóli 1
  • Æfingaakstur
  • Ökuskóli 2
  • Ökuskóli 3
  • Undirbúningur fyrir próf
  • Prófakstur

Þú færð skýra áætlun og leiðsögn alla leið - svo þú veist alltaf hvað er næst.

Hefja nám

Ertu með spurningar áður en þú byrjar?