Ökukennsla
Ökukennsla
FRÁ OG MEÐ 15.JÚNÍ 2026
Hér getur þú hafið ökunámið þitt með verklegum ökutímum. Nemendur þurfa að klára að minnsta kosti 15 tíma til þess að taka verklegt bílpróf, en algengt er að tímarnir séu á bilinu 17 til 25 í heildina á námstímanum. Eftir 10 ökutíma og Ökuskóla 1 má hefja æfingaakstur.
Hvað gerist eftir kaup?
- Þú kaupir tíma
- Þú færð tölvupóst með staðfestingu á kaupunum
- Hafsteinn hefur samband við þig til þess að bóka tíma sem hentar þér
- Þú mætir í ökutímann
- Hafsteinn setur upp námsáætlun út frá þínum markmiðum - skýr áætlun og leiðsögn alla leið, svo þú veist alltaf hvað er næst
- Hafsteinn aðstoðar nemanda að velja viðurkenndan ökuskóla sem sér um bóklegt nám í Ökuskóla 1, Ökuskóla 2 og Ökuskóla 3
Þú getur valið um að kaupa einn eða fleiri ökutíma í einu.
Ferli ökunámsins
Ferli ökunámsins
Í upphafi
- 10 ökutímar
- Bóklegt nám við Ökuskóla 1
Eftir 10 ökutíma og Ökuskóla 1
- Æfingaakstur - Leyfi er gefið þegar ökukennari telur nemandann nægilega öruggan í akstri, nemandi hefur lokið 10 verklegum ökutímum að jafnaði og Ökuskóla 1 er lokið
- Ökuskóla 2 - bóklegt nám má hefja eftir að Ökuskóla 1 er lokið
- Ökutímar með kennara eru teknir á æfingaaksturstímabilinu
- Ökuskóli 3 - verklegt námskeið þarf að ljúka áður en verklegt próf er bókað
Þegar líður að próftíma
- Ökutímar með ökukennara til þess að undirbúa nemandann fyrir verklegt próf, fjöldi tíma er misjafn
- Heimilt er að þreyta bóklegt próf til bílprófs 2 mánuðum fyrir 17 ára afmælisdaginn, þá þarf að hafa lokið 12-14 ökutímum ásamt Ökuskóla 1 og Ökuskóla 2
- Heimilt er að þreyta verklegt próf 2 vikum fyrir 17 ára afmælisdaginn, þá þarf öllu ökunámi að vera lokið
Ef þú ert ekki nú þegar í kennslu hjá mér, hafðu þá endilega samband áður en þú kaupir tíma!
Er þetta fyrsti ökutíminn?
Couldn't load pickup availability
- Millifærsla / Kortagreiðsla

Algengar spurningar
Hvenær má ég byrja í ökutímum?
Þegar þú ert orðinn 16 ára má hefja ökunám.
1. Velja ökukennara
2. Sækja um námsheimild á island.is - athugaðu að þú þarft að vera með Stafræn skilríki til þess.
3. Skila inn passamynd á skrifstofu næsta sýslumanns.
Þegar námsheimild er komin í hús er komið að fyrsta ökutímanum, ásamt því má hefja bóklegt nám í Ökuskóla 1 sem er tekið rafrænt.
Hvað þarf ég að fara í marga ökutíma?
Lágmarksfjöldi tíma til þess að þreyta verklegt bílpróf eru 15 talsins, hins vegar er algengara að nemendur taki 17 – 25 ökutíma. Það er einstaklingsbundið hvað þarf marga tíma, það sem skiptir mestu máli er að nemandi finni til öryggis og ánægju við aksturinn. Eftir 10 ökutíma og Ökuskóla 1 má hefja æfingaakstur.
Get ég skipt greiðslum?
Já, þú greiðir fyrir hvern tíma fyrir sig við bókun en við bjóðum upp á greiðslur með millifærslu eða korti.
Hvernig bóka ég tíma?
Þegar þú kaupir tíma færðu sendan tölvupóst með staðfestingu á tímanum, Hafsteinn verður svo í sambandi við þig til þess að finna tíma sem hentar þér.
Ef þú ert að bóka fyrsta tímann þinn hjá ÖkuEyland er gott að senda fyrst póst svo við getum komið þér fyrir í námið miðað við þín tímamarkmið.
Get ég ekki tekið bóklegt nám hja ykkur?
Við erum ekki með bóklega hluta ökukennslunnar hjá okkur, en við leiðbeinum
þér um val á viðurkenndum ökuskóla og setjum inn í námsáætlunina þína.
Hvað ef ég er stressuð/stressaður?
Kennslan er byggð upp rólega eftir þörfum hvers og eins og miðast því við þinn hraða. Við leggjum áherslu á að nemendur öðlist sjálfstraust við akstur.
-
Ökukennarinn
LESA MEIRAHafsteinn leggur áherslu á rólega og uppbyggilega kennslu þar sem þú byggir upp sjálfstraust og færni á eigin hraða.
Markmiðið er að þú verðir örugg/ur í akstri - ekki bara að ná prófinu. -
Ökukennslan
LESA MEIRAÖkukennsla skiptist í verklegt og bóklegt nám. Verklegir tímar eru að lágmarki 15 og Ökuskólarnir eru þrír talsins.
Þegar þú hefur ökunámið hjá okkur leiðbeinum við þér í gegnum allt ferlið. -
Hvenær má byrja?
LESA MEIRAÞað eru margir sem velta fyrir sér hvar eigi að byrja þegar líða tekur að ökunámi.
Ökunámið getur hafist á 16 ára afmælisdeginum sem skiptist í verklegt og bóklegt nám.