Vertu í sambandi!

Ert þú að huga að ökunámi? Ekki hika við að hafa samband ef þú vilt hefja nám hjá mér eða ert með einhverjar spurningar. Þú getur haft samband símleiðis í 867 3448 eða sett skilaboðin hér að neðan og ég svara þér við fyrsta tækifæri.

Hafðu samband

Algengar spurningar

Hvenær má byrja í ökunámi?

Þegar þú ert orðinn 16 ára má hefja ökunám.

1. Velja ökukennara

2. Sækja um námsheimild á island.is - athugaðu að þú þarft að vera með Stafræn skilríki til þess.

3. Skila inn passamynd á skrifstofu næsta sýslumanns.

Þegar námsheimild er komin í hús er komið að fyrsta ökutímanum, ásamt því má hefja bóklegt nám í Ökuskóla 1 sem er tekið rafrænt.

Lesa nánar.

Hvað þarf marga ökutíma?

Lágmarksfjöldi tíma til þess að þreyta verklegt bílpróf eru 15 talsins, hins vegar er algengara að nemendur taki 17 – 25 ökutíma. Það er einstaklingsbundið hvað þarf marga tíma, það sem skiptir mestu máli er að nemandi finni til öryggis og ánægju við aksturinn. Eftir 10 ökutíma og Ökuskóla 1 má hefja æfingaakstur.


Lesa meira um ökunám á Íslandi

Hvernig bóka ég tíma?

Þegar þú kaupir tíma færðu sendan hlekk á dagatal þar sem þú velur dag og tíma sem hentar þér fyrir fyrsta ökutímann þinn.

Get ég tekið bóklegt nám hjá ykkur?

Við erum ekki með bóklega hluta ökukennslunnar hjá okkur, en við leiðbeinum
þér um val á viðurkenndum ökuskóla og setjum inn í námsáætlunina þína.

Get ég dreift greiðslum?

Já. Þú greiðir fyrir tímana þegar þú bókar en við bjóðum upp á fjölbreyttar greiðsluleiðir: með millifærslu, kortagreiðslum, Netgíro og Pei.

Er þetta viðurkennt nám?

Já, öll kennsla fer fram samkvæmt reglum Samgöngustofu og við leiðbeinum þér við val á viðurkenndum ökuskóla sem sér um bóklegt nám.

Ökukennsla

Skipulagt ökunám frá fyrsta tíma til prófs - ég sé um ökukennsluna en leiðbeini þér alla leið!
  • að lágmarki 15 ökutímar
  • Ökuskóli 1
  • Æfingaakstur
  • Ökuskóli 2
  • Ökuskóli 3
  • Undirbúningur fyrir próf
  • Prófakstur

Skoða nánar