Ökukennarinn
Hafsteinn Eyland Brynjarsson er ökukennarinn á bakvið ÖkuEyland. Hjá Hafsteini lærir þú á beinskiptan bíl. Hann leggur áherslu á rólega og uppbyggilega kennslu þar sem þú byggir upp sjálfstraust og færni á eigin hraða.
Að velja réttan ökukennara getur haft mikil áhrif á það hvernig ökunámið gengur.
Hann leggur áherslu á persónulega nálgun, skýra uppbyggingu og öruggt námsumhverfi.
Ökukennslan
-
Persónuleg nálgun
Engir tveir nemendur eru eins. Sumir læra hratt, aðrir þurfa meiri tíma til að byggja upp öryggi. Ég legg áherslu á að:
- meta stöðu hvers nemanda
- aðlaga hraða námsins
- byggja upp sjálfstraust í hverjum tíma
Markmiðið er ekki bara að klára námið, heldur að þú verðir örugg/ur í akstri.
- meta stöðu hvers nemanda
-
Skýr áætlun
Margir upplifa óvissu í ökunámi.
- Hvað þarf ég marga tíma?
- Hvenær fer ég í próf?
- Hvað á ég að gera næst?
Ég skipulegg námið þitt með skýrri leið frá byrjun, með áætlun sem tekur mið af þér með stöðugri leiðsögn svo þú vitir alltaf hvað er næst á dagskrá.
- Hvað þarf ég marga tíma?
-
Stuðningur alla leið
Námsáætlun sem tekur mið af markmiðum hvers og eins. Þetta innifelur skipulag á:
- Ökutímum
- Ökuskólunum þremur
- Æfingaakstrinum
- Prófundirbúningi, bæði verklegum sem bóklegum
- Próftímum
Með góðu skipulagi og aðhaldi klárar þú námið með sjálfstrausti og öryggi á réttum tíma.
-
Skv. Samgöngustofu
Öll kennsla fer fram í samræmi við:
- reglur Samgöngustofu
- opinberar kröfur um ökunám
- öryggisviðmið í umferð
Ég get leiðbeint um val á viðurkenndum ökuskóla fyrir bóklega hlutann.
Þetta tryggir að námið sé bæði faglegt og viðurkennt.
- reglur Samgöngustofu
-
Raunverulegar aðstæður
Í akstri er ekki nóg að kunna bara umferðarreglurnar - þú þarft að geta brugðist rétt við aðstæðum hverju sinni. Við leggjum því áherslu á:
- raunverulegar aðstæður
- hættumat og ákvarðanatöku
- ró og stjórn í akstri
Þetta er það sem skiptir máli í prófinu og það sem meira er, í akstri eftir það.
- raunverulegar aðstæður
-
Ökunámið
Skoða beturGott ökunám snýst ekki bara um að ná prófi, heldur að verða öruggur ökumaður.
Með persónulegri kennslu, skýrri áætlun og faglegri nálgun færðu betri upplifun og meiri árangur.
Ég býð upp á verklega hlutann í ökukennslunni, ég set upp skipulagða námsáætlun í góðu samstarfi við þann Ökuskóla sem þú velur fyrir bóklega kennslu.
Algengar spurningar
Hvenær má byrja í ökunámi?
Þegar tilvonandi nemandi er orðinn 16 ára þarf hann að finna sér ökukennara og sækja um námsheimild á island.is - athugið að nemandinn þarf að vera með Stafræn skilríki til þess. Auk þess þarf að skila inn passamynd á skrifstofu næsta sýslumanns.
Þegar námsheimild er komin er komið að fyrsta ökutímanum ásamt því má hefja bóklegt nám í Ökuskóla 1 sem er tekið rafrænt.
Hvað þarf ég að fara í marga ökutíma?
Lágmarksfjöldi tíma til þess að þreyta verklegt bílpróf eru 15 talsins, hins vegar er algengara að nemendur taki 17 – 25 ökutíma. Það er einstaklingsbundið hvað þarf marga tíma, það sem skiptir mestu máli er að nemandi finni til öryggis og ánægju við aksturinn. Eftir 10 ökutíma og Ökuskóla 1 má hefja æfingaakstur.
Lesa meira um ökunám á Íslandi
Hvernig bóka ég tíma?
Þegar þú kaupir tíma færðu sendan tölvupóst með staðfestingu á tímanum, Hafsteinn verður svo í sambandi við þig til þess að finna tíma sem hentar þér.
Er þetta viðurkennt nám?
Já, öll kennsla fer fram samkvæmt reglum Samgöngustofu og við leiðbeinum þér við val á viðurkenndum ökuskóla sem sér um bóklegt nám.
Get ég dreift greiðslum?
Já, þú greiðir fyrir hvern tíma fyrir sig við bókun en við bjóðum upp á greiðslur með millifærslu, korti, Netgíró og Pei.
Ökunám
- Að minnsta kosti 15 ökutímar
- Ökuskóli 1
- Æfingaakstur
- Ökuskóli 2
- Ökuskóli 3
- Undirbúningur fyrir próf
- Prófakstur
Þú færð skýra áætlun og leiðsögn alla leið - svo þú veist alltaf hvað er næst.