Þjónusta: Ökunám
-
Akstursmat
Regular price Frá 10.000 ISKRegular priceSale price Frá 10.000 ISK -
Kerrupróf - BE réttindi
Regular price 84.000 ISKRegular priceSale price 84.000 ISK
Algengar spurningar
Hvenær má byrja í ökukennslu?
Þegar tilvonandi nemandi er orðinn 16 ára þarf hann að finna sér ökukennara og sækja um námsheimild á island.is - athugið að nemandinn þarf að vera með Stafræn skilríki til þess. Auk þess þarf að skila inn passamynd á skristofu næsta sýslumanns.
Þegar námsheimild er komin er komið að fyrsta ökutímanum ásamt því má hefja bóklegt nám í Ökuskóla 1 sem er tekið rafrænt.
Hvað þarf marga ökutíma?
Lágmarksfjöldi tíma eru 15 talsins til þess að öðlast almenn ökuréttindi (Bílprófið). Í flestum tilfellum taka nemendur um 17–25 ökutíma, en það er ekki föst tala. Sumir þurfa færri tíma en aðrir fleiri - það fer eftir aðstæðum og undirbúningi.
Hvar bóka ég ökutímana?
Hafsteinn er í sambandi við þig þegar þú hefur nám hjá okkur.
Þá getur þú valið þá tíma sem henta þinni dagskrá & út frá námsáætluninni sem við setjum saman.
Er þetta viðurkennt nám?
Já, öll kennsla fer fram samkvæmt reglum Samgöngustofu og ég aðstoða við val á viðrukenndum Ökuskóla sem sér um bóklegt nám sé þess óskað.
Get ég skipt greiðslum?
Þú ræður hversu marga tíma þú kaupir í einu, við bjóðum upp á greiðslur með millifærslu eða korti.
Get ég ekki tekið bóklegt nám hja ykkur?
Við erum ekki með bóklega hluta ökukennslunnar hjá okkur, en við erum í góðu samstarfi við Netökuskólann og setjum bóklega hlutan inn í námsáætlunina þína.
